Burgerflipping er lífsstíll...
30.09.2006 20:28:41 / Frida

Hjónaburgers

lokaparty-gunnarsholt022.jpg

Já fyrst þessi síða er ekki eins dauð og ég hélt þá er um að gera að ég misnoti aðstöðu mína og óski hér með Mr and Mrs Burgerflipper til hamingju með 2ja ára brúðkaupsafmælið um daginn!

Look at the pretty burgers!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 12:41:59 / Hildur

Hildur tjáir sig!

Sumarið er farið, haustið komið og veturinn nálgast! Fríið búið og skólinn byrjaður. 1. hvers mánaðar er hættur að vera eins spennandi því að talan á launaseðlinum er orðin svo lág. Annars lítið að frétta, allt við það sama. Ég hætt að eiga mér frítíma sökum vinnu og skóla. Eggjastokkarnir á Fríðu klinkja ennþá þegar hún sér lítil börn og Íris aftur komin til Akureyrar þar sem hún mun stjórna skemmtanalífinu.

Sumarið var rosalega gott í alla staði. Ég og Fríða vorum að vinna í Gunnarsholti og eignuðumst þar frábæran hóp af vinum!

Sumarið 2006!
Sirkusnámskeið í Dk. Takk æðislega fyrir magnaða ferð allir saman!
Við krakkarnir í vinnunni vorum fastagestir á Kristjáni X.
Ferðin til Víkur á sveitaballið er ógleymanleg..
Vinnuferðin í Þórsmörk var klassi, mikil nekt hjá ónefndum aðilum.
Pottapartýið og grillið hjá Öllu og Eyfa.
Klámmyndakvöldið í Gunnarsholti.
Landsmótið sem ég fór á með Almari og Familíunni.
og svo auðvitað ÞJÓÐHÁTÍÐ 2006! sem var ÆÐISLEG!
Það er svo margt meir sem gert var í sumar sem ég hreinlega man ekki allt. Allt djammið um helgar og auðvitað á virkum dögum líka.

Allavega, neita að láta þessa síðu deyja út. =)



» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 23:55:05 / Hildur

Samastaðir í lífinu..

Þannig er mál með vexti að fjölskyldan mín ákvað það að byrja að gera upp húsið okkar á fullu, svona farið að vora og ágætis veður komið enn tilvalið að skipta um þak..

Þar sem faðir minn er nú ekkert sá hljóðlátasti svona almennt þá er það eins og heimstyrjöld þegar hann er kominn upp á þak að vinna. Mér líður eins og það séu nokkur hundruð manns á þakinu þegar hann er nú bara einn þarna. Og þar sem allt fór á fullt núna í byrjun vikunnar án þess að nokkur sála uppgvötaði það að ég væri í prófum og þyrfti minn frið til að læra þá varð ég að finna mér nýjan samastað.  Þannig að ég er búin að taka mér bólfestu við borðstofu borðið hennar Fríðu, mjög svo fallegt borð úr Mahoní við.. agalega lekkert svona fallegir mjúkir stólar í stíl með eitthverskonar rauðgulu áklæði, agalega smart allt saman.

Þannig að staðan í lífinu er: ég verð í Áslandi 8 út prófin fer nú samt heim og sef á milli þar sem Óli bróðir hennar Fríðu heldur að ég mundi drepa hann í svefni.. Bjáninn hann. Svo eru prófin búin þann 17. maí og þá skellir maður sér á dansiball hjá Kvennaskólanum og svo snemma um morguninn þann 18 í Gunnarsholt ;)

Svo er það toppurinn þann 27. maí þegar við höldum af landi brott og ætlum að kíkja í Danaveldi ásamt mjög svo góðu liði. Í sirkusskóla er haldið skal ég segja ykkur..

Núna eftir þessa gasalegu færslu sjáið þið afhverju ég blogga ekki? Án alls efa er ég búin að drepa nokkra úr leiðindum og enn aðrir leggja hreinlega ekki í það að lesa bullið sem ég skifa..

Heyr heyr.. Gleðilega páska (Til þeirra sem ég hitti ekki og óskaði ekki til hamingju) OG GLEÐILEGT SUMAR =)


» 16 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 23:50:13 / Frida

Eeeiiiii

Sko! Síðan er alls ekki dauð, bara búin að vera í smá dvala!

Mikið og margt hefur gerst síðan síðast var bloggað á burgerflippers en við látum það nú ekki á okkur fá. Páskarnir eru búnir eins og glöggir menn kannski tóku eftir og Íris er komin og farin frá okkur! Hennar fagra smetti mun ekki sjást á malbikinu fyrr en í júní sem er auðvitað skandall.

Við Hildur áttum frábært kvöld. Það sem átti að vera stutt stopp hjá Sólu og Hreiðari varð auðvitað að langri heimsókn og miklu nammiáti.

Við vorum sendar í bíltúr með 3.000 kall til að kaupa nammi og eitt stykki Ragnar Bjarna (það er að segja, Ragnar Bjarni var með í för, við áttum ekki að kaupa hann). Þá fattaði ég hvað hann er að verða of líkur okkur!

ÍRIS! Hann sagði appelsínubrandarann!!!!!!!

Svo dó ég líka úr hlátri þegar hann sagðist hafa heyrt bananabrandarann...

Picture013.jpg

Ég, Ragnar Bjarni og Íris...

Sóla og Hreiðar fá líka knús fyrir að láta mig sjá heiminn í nýju ljósi ;) Takk fyrir það!

Svo skora ég á my fellow burgers að halda síðunni uppi!

- Fríða -


» 13 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 09:13:43 / Iris

HILDUR Á AFMÆLIIIII :D:D

Jáh.. það er merkisdagur í dag... hún Hildur beibí á afmæli í dag og er stúlkan 17 ára ! :D

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIIIIÐ :D

Hildur fær einmitt bílpróf og svona skemmtilegt í dag ;)

IMG_9879.jpg

Þarna er einmitt krúttlega afmælisbarnið...

En ég óska Hildi Brynjarsdóttur ánægjulegs afmælisdags (jafnvel þótt að ég sé ekki þarna.. úff það verður erfitt ;)), skemmtu þér vel !!

-Íris Björk


» 19 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 09:32:03 / Iris

Daaaginn...

Jáhh.. ég er ekki frá því að þessi síða sé á hraðri niðurleið! 8|

En allavegana! Ég ætla aðeins að rifja upp atburði síðustu daga.

Fimmtudagur

Þá skelltu u.þ.b 330 MA-ingar sér suður því að MA átti að mæta MR í Gettu betur..Fórum um hádegið og sátum í rútunni í 5 tíma (jeij). Á leiðinni voru æfð ýmis hvatningarhróp svo að það var bara ágætis stemmari. Þegar suður var komið þá var auðvitað skellt sér á Stjörnutorg þar sem fólk hakkaði í sig hambó eða Boozt (....mm). Fólkinu var svo öllu torðið inní rútu þar sem keppnin átti að vera haldin. Þegar þangað var komið var varla hægt að heyra í eigin hugsunum fyrir brjáluðum stuðningsliðum :D Held að ég hafi sjaldan sungið "Hesta Jóa" svona oft! En það borgaði sig greynilega því að MA rústaði MR !!! Algjör snilld að fella MR úr keppni! Jíhaaaaaa.....

Gó MA, gó MA, gó gó gó MA!

Flestir áttu svo eftir að keyra alla leið til baka en ég ákvað nú bara að skella mér heim, nýta ókepis rútuferð sjáðu til ;)

 

Föstudagur

Ég ætlaði að hafa það voooða kósý yfir daginn, þar sem að ég þurfti ekki að mæta í skólann en neeeeeeei! Þegar að ég labbaði fram um morguninn þá steig ég næstum því á hálfrotnaðan fugl inní stofu!! Mamma og pabbi voru semsagt í Austurríki og ekki búin að vera heima í viku og Sæþór bró var nú ekkert búin að fara inní stofu svo að fuglinn búinn að vera þarna í marga daga! OJ.... ég fékk þá hreyngerningarBRJÁLÆÐI....

Um kvöldið hitti ég bara Fríðu, Almar, Hildi, Sillu og Lilju... :D

 

Laugardagur

Ég dró Hildi, Fríðu og Sillu með mér í bæinn... Þær voru nú ekkert svaðalega spenntar yfir þessari ferð hehe ;)

Um kvöldið elduðum við nokkrir krakkar saman, mjög næs! Ég, Hildur, Almar, Lilja, Vallý, Jói og Unnur. Á boðstólnum var dýrindis Taco! Jammí...

IMG_9838.jpg

Svo var þessu bara slegið uppí kæruleysi, áfengi (þar á meðal staupataflið :D , skákfélag Ingólfs) dregið fram og fleira og fleira fólk fór að týnast inn! Singstar var mjöööög vinsæll, sérstaklega hjá henni Lilju beibí ;)

IMG_9886.jpg

Unnur og Lilja á góðri stund ;)

Svo verð ég að hafa mynd af skákinni... bara fyrir Fríðu og Lindu.. og auðvitað Jón Gnarr ;)

IMG_9860.jpg

 

 

En síðan hélt ég bara heim á Mánudagsmorgun aftur til Akureyrarinnar....

 

-Íris Björk


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 21:29:41 / Iris

Árshátíð VMA...

Já sælt veri fólkið!
Það er búinn að líða dotill tími síðan að ég bloggaði síðast.. hmm... en Fríða beibí reddaði þessu :P

Allavegana, á föstudaginn var árshátíð VMA-inga haldin hátíðlega í Sjallanum. Todmobile átti að sjá um að halda stemmingunni í gangi,  það má nú samt deila um það hvort kvikindunum tókst það.
Ég hafði nú planað að fara bara á ballið en ekki matinn vegna þess að það kostaði mig nú eiginlega aleiguna en ég ákvað á síðustu stundu að eyða síðustu krónunum mínum í þennan líka "gómsæta" mat ;) Við stelpurnar gerðum okkur svo reddí fyrir ballið og keyrðum svo með köllunum í eitthvað partý og svo niðrí Sjalla. Borðið okkar varð nú skrautlegra þegar að leið á kvöldið því að Þór, Sveinbjörn og Bjarki  helltu vel í sig á meðan á borðhaldinu stóð þrátt fyrir settar reglur :P Ég, Arney og Töddi vorum hinsvegar voða stillt... Ég get nú samt ekki sagt að maturinn hafi verið 3500 krónu virði eeeeen! 
Eftir matinn og skemmtiatriðin skelltum við okkur uppá vist þar sem sumir helltu í sig en aðrir klæddu sig í partýgallann. Við fórum þá aftur niður í Sjalla eftir klukkutíma eða svo því að þá átti Todmobile að byrja að spila. Svo byrjaði fólkið að týnast inná dansgólfið og dilla sér í takt við lögin (sem btw fáir þekktu... össs)
Sumir skemmtu sér betur en aðrir, sem dæmi má nefna hana Þórdísi Jónu, en þess má til gamans geta að hún var á sínu fyrsta fylleríi og var sú allra skrautlegasta! úff...Hún ákvað t.d nú bara að skella sér uppá svið til Þorvaldar Bjarna og FLENGJA manninn! Þetta er ekkert sem maður gerir á hverjum degi, og fáir yfir ævina! Ekki eru allir sovna skrautlegir á sínu fyrsta fylleríi ;) Hún einmitt kom í veg fyrir margar ríðingar líka þetta kvöld, eða allavegana 2 hehe! Maður skemmti sér kanski ekki alveg jafn vel en auðvitað reyndi maður, en þegar að þolinmæðin var alveg á þrotum þá skelltum ég, Arnór, Salbjörg og Jónas okkur á Oddvitann því að margir höfðu víst horfið af ballinu og farið þangað. Þegar þangað var komið smeygðum við okkur framhjá dyravörðunum og inn. Þar inni var eitthvað af fólki sem maður þekkti.. samt ekki eins margir og maður bjóst við! Ég og Arnór baktöluðum DJ-inn alveg eins og við fengjum borgað fyrir það (eða allavegana ég, helvítis 50 cent tónlist!!). Fólkið fór þá að týnast út smátt og smátt en ég og Arnór sátum nú samt áfram að rakka niður tónlistina og sötruðum smá öl. Um 5 leytið löbbuðum við svo heim í ííííískulda! Og ég í stuttum kjól... váh.. hélt að lærin myndu frjósa af mér! Og það var alveg hreynt yndislegt að leggjast undir sæng þegar ég kom uppá vist :D úff....
Í heildina litið var þessi árshátíð nú ekkert spes en maður gat samt alveg skemmt sér, ég bjóst nú samt við meiru að þessari árshátíð verð ég nú að segja!
Ég hendi mjög líklega eitthverjum myndum inn seinna..


En að öðru, mamma, pabbi og Fannar fóru til Austurríkis í morgun....:( Ég get ekki líst öfund minni einu sinni! Ekkert er jafn gaman og fara í skíðaferð en ég hefði nú samt skópað mig úr skóla ef ég hefði farið svo að það er takmarkað hversu sniðugt það hefði verið! En pabbi kallinn vorkenndi mér nú svolítið svo að hann ákvað að bjóða mér til Englands um páskana á Manchester leik á Old Trafford! :D Ekki er það slæmt! Hann var búin að lofa því að fara með mig á leik í mörg ár en ég bjóst nú ekkert frekar við því að hann myndi standa við það, en sko kallinn!


The image “http://www.ittravel.is/files/Old%20Trafford%20Man%20U%20v%20Arsenal.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

-Íris Björk

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 16:47:43 / Frida

"Við erum að veiða kindur og setja þær í búrin sín"

Tvö blogg í röð... GÓ FRÍÐA!!!

Helgin mín var æði! Föstudagskvöldið var ótrúlega rólegt. Mamma og Sigrún frænka höfðu girls niiiiiight þar sem þær máttu ekki fara á kallakvöld Lions eins og... kallar! Svo þær pössuðu Guðrúnu Emblu á meðan Ásdís fór að syngja á kallakvöldinu. Ég ákvað að stinga þær af eftir að Guðrún Embla hafði gubbað ofan í hálsmálið mitt svo það rann ljúflega á milli brjóstanna minna (aawww litla krúttið mitt).

Ég rölti mér þá til Hildar þar sem þau hjónin voru að kúrast. Við átum bara tonn af nammi og höfðum það kósý.

Í gær fórum við ásamt Elínu beib að hitta Kareni eyjapæju! Æææðislegt að hitta hana loksins aftur, verður að koma oftar stelpa!

Svo kom eitthvað lið hingað til mín að horfa á Júró! Silvía Nótt rústaði þessu eins og við var að búast svo við töpuðum okkur í Sing Star og tókum nokkra góða dans takta í stofunni... Já og horfðum á ónafngreinda pilta kyssast í web cam! Ef einhver óskar eftir að fá að sjá mynd af því þá er það bara 2000 kall og málið er dautt!

Við söknuðum Írisar reyndar dáldið mikið í gær... Það er enginn stofudans án Írisar! Íris var aftur á móti stödd á Húsavík að gefa kindum fisk að eigin sögn. Ég á ennþá eftir að komast almennilega til botns í því máli en ég mæli sterklega gegn því að Íris fái að umgangast kindur. Sjáið bara meðferðina á aumingja Dollý!

Ég tók nokkrar myndir í gær... Spurning um að skella þeim inn?


» 15 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 01:19:07 / Frida

Árshátíðargleði

Ég ætlaði að veita Hildi þann vafasama heiður að fá að blogga um Árshátíð Kvennaskólans en ég sá það bara ekki fyrir mér gerast...

Árshátíðin var allavega geðveik!! Dagurinn minn byrjaði á ótrúlega kósí morgunpartý hjá Krumma bekkjarbróður (sem bæðevei var steeeiiiinsofandi þegar ég bankaði hjá honum um morguninn). Þar var troðið í sig bakaríis mat og bekkjarmeðlimum veitt verðlaun í hinum ýmsu flokkum... Ég fékk enga kórónu í þetta skiptið en ég mun koma sterk inn á næsta ári, bíðið bara!

Svo var haldið heim og skellt sér í sparigallann fyrir kvöldið! Ég hélt svo í fyrirpartý til Guðnýjar bekkjarsystur þar sem við pöntuðum pizzu og sturtuðum í okkur fyrir ballið. Á meðan ku Hildur nokkur Brynjarsdóttir hafa verið mætt á Selfoss í matinn og skemmtiatriðin.

Þegar klukkan sló 9 lögðu svo seinni rúturnar af stað frá Kvennó á Selfoss þar sem ballið var haldið. Rútan var reyndar ekki komin lengra en að borgarmörkunum þegar hún þurfti að stoppa til að hleypa 30 manns út að pissa og öðrum 20 út að æla. Ég var nú sem betur fer bara í fyrri hópnum!

Loksins komumst við á leiðarenda en þá var ælulyktin í rútunni líka orðin óbærileg. Og hófst þá dansmadnessið sem lauk ekki fyrr en kl 3 þegar lappirnar voru orðnar bláar og þrefaldar. En það var vel þess virði!

1. og 2. bekkur hélt þá heim á leið en 3. og 4. bekkur héldu áfram djamminu á sínum hótelherbergjum. Þar sem við Hildur tilheyrðum báðar fyrrnefnda hópnum þá hentumst við upp í rútu og gáfum skít í allt hóteldjamm með góðu slúðurstoppi á Subway ásamt Hrefnu og Steina.

Þannig að til að gera langa sögu stutta: ÁRSHÁTÍÐIN VAR MEGA!!!

Myndirnar mínar má finna á
http://123.is/fridan
og
http://photobucket.com/albums/b89/fridan2/Arshatid2006-morgunparty/

TAKK FYRIR MIG!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 18:47:11 / Iris

Sælt veri fólkið!

Já góðan daginn gott fólk!

Þá er maður komin enn og aftur á Eyrina fögru, ágætt að vera komin aftur svosem þótt að það sé búið að róast alveg svaðalega hérna á vistinni eftir áramót, samt alltaf gott að fá að hitta fólkið sitt aftur :D Það er þó eitt sem allir vistarbúar eiga sameiginlegt þessa dagana... og það er hvað fólk er óendanlega gratt... Já gott fólk, maður verður stundum að koma með þessi umræðuefni, þetta er bara eitthvað sem verður að ræða ;)

Þessi mynd ætti að lísa ástandinu á mörgum þessa dagana!

Það er semsagt ráðist á allt sem hreyfist og ef það hreyfist ekki þá á fólk það til að hrista það ;) Litlir sem stórir og feitir sem grannir, skiptir ekki máli, allir hugsa það sama! Öss...

EN.. annað málefni, og það er hún Silvía Nótt... Snillingur eða Hálviti?? Mér persónulega finnst hún algjör snilld! úff.. dýrka þessa manneskju og finnst svo að hún ætti að komast áfram í Júróvísjon! Ég meina Íslendingar vinna hvort sem er aldrei þessa keppni svo að hví ekki að slá þessu upp í grín??! Hún í sínum spndex galla! Ég segi bara HELL YEAH og áfram Silvía Nótt!

-Íris Björk


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 15:07:23 / Frida

Blablablabla

Góðan dag gott fólk!

Ég ákvað að segja nýtt burgerflipp met í löngu bloggi því Íris er alltaf að tuða yfir að hún sé lang duglegust ;)

BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBABLABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA
BLABLABLABLABLABLABLABLABLABLAABLABLABLALBALABLABLABLABLABLABLABLA

Í öðrum fréttum er það að ég er komin með ógeð á vinnunni minni. Það sama má segja um Hildi. Hér með óska ég eftir vel borgaðri vinnu þar sem ég þarf ekki að gera rassgat!

Gærkvöldið mitt var alveg ómetanlega hresst. Ég fór ekki einu sinni út úr húsi *scoooore*... En ég var samt sátt enda verður maður að safna orku fyrir árshátíðina sem nálgast óðfluga. Það verður venjulegur kennsludagur á mánudaginn en á þriðjudaginn byrja tjarnardagarnir. Á þriðjudeginum fer ég í jóga og á miðvikudeginum að dansa afró! Það ætti að verða skrautlegt. Ég vildi fara í bláa lónið en neeeeii það vildi enginn koma memm.

Fimmtudagurinn byrjar svo með morgunpartýi þar sem bekkurinn hefur það kósý saman. Svo fer maður heim og gerir sig reddí og mætir svo í fyrirpartý. Bekkurinn minn ætlar að beila á að fara í matinn, ætlum bara að panta okkur eitthvað gotterí í staðinn og mæta svo full á ballið híhí... Ég er samt strax farin að kvíða fyrir rútuferðinni á Selfoss (þar sem ballið er þar). Af hverju þarf maður alltaf að pissa svona mikið??? Rútuferðin í fyrra var afar eftirminnileg fyrir gríðarlegar pissuhaldísérkvalir þangað til bílstjórinn samþykkti loksins að hleypa okkur út á heiðinni. Þar óðum við skafla sem náðu upp að lærum í sparifötunum okkar í stórhríð.

DO NOT EAT YELLOW SNOW!!!

Annars er frekar pointless að vera að segja frá þessu í smáatriðum núna, ætti frekar að gera það eftir árshátíðina sjálfa. Svo meira þá...

Sátt Íris mín? ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 20:20:04 / Iris

Good to be home ;)

Haaalló!

Váh hvað það er alltaf gott að koma heim :D Maður fær loksins almennilegt að éta og það er dekrað við mann hægri vinstri, sem er alls ekki slæmt!

Eeen, á miðvikudaginn fórum ég, Hildur, Almar, Hrefna, Einar, Þórunn, Óli og Thelma öll saman á Borgóballið. Áður en ballið byrjaði hittumst við öll heima hjá Hildi, stelpurnar gerðu sig reddí (sem getur tekið smááá tíma) og svo fengum við okkur smá öl. Ballið var haldið á Nasa og hélt Á móti sól uppi stuðinu og verð ég að segja að þeir stóðu sig með príði! Við dönsuðum eins og við fengjum borgað fyrir það og svo hitti maður fullt af mosfellingum á ballinu... Alltaf gaman að sjá alla aftur :D En ballið var í alla staði ææææðislegt! Ég var einmitt svo dugleg að setja inn myndir af ballinu svo að tjékkiði hérna til hliðar, undir Fyrir Borgóball ;)

Í gær komu Hildur og Almar til mín og við höfðum það bara kósí að éta nammi og skoða myndir frá ballinu! Maggi kaglinn hringdi svo og tilkynnti okkur að hann væri staddur í Mosó heima hjá vini sínum, svo að ég og Almar skelltum okkur til hans. Þegar að við komum á staðinn föttuðum við nú alveg að þessi heimsókn ætti ekki eftir að vera neitt nema rugl, kallarnir voru bliiiiind fullir! hehe.. verð samt að viðurkenna að við höfðum svona lumskt gaman að því svo að við ákváðum að setjast niður með þeim og frá okkur smá öl. Það síðasta sem við sáum af Magga áður en við fórum var þegar að hann var að skríða uppí rúm með vini sínum, við furðum okkur ennþá hvernig þeir komust báðir fyrir ;)

Það var á planinu hjá mér að fara á ML ball á eftir, en það breyttist :S Okkur langaði ekkert smá mikið! Sorry Geiri :S

En fyrst að ég kemst ekki á ballið þá fer ég víst með henni Fríðu í bekkjarparty niðrí bæ.. það verður örugglega stemmari þar, fæ allavegana að hitta Sillu og Lindu fola! :D

En farið ykkur ekki af voða um helgina! ;)

-Íris Björk

Strákar,  þið fílið stór brjóst right? :P


» 20 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 20:47:56 / Iris

Komin heim :D

Jæja... eins og kom fram í þessu svaaaðalega bloggi sem hún Fríða skirfaði áðan þá er ég komin heim í vikufrí! :D Er búin að vera í prófum og læra eins og meiníak og hef ekkert nema gott af smá fríi ;) Og vá hvað það er alltaf gott að koma heim, allir dekra við mann eins og þeir fái borgað fyrir það, ég kvarta ekki verð ég að segja 8)

Ég ætlaði að mæta á æfingu í kveld en það var bara enginn að fara og ég vissi ekkert hvenar hún væri...þannig að þær skvísur sem að eru að æfa með 2.flokk aftureldringar, endilega látiði mig vita hvenar æfingarnar eru, ég er meira en til í að mæta í þessa viku :D

Eeen, eins og flestir Íslendingar hafa tekið eftir þá er kalt á Íslandi! (newsflass) Maður er hvítur allann ársins hring, nema maður fari til útlanda og nái sér í smá brúnku! Ég rakst einmitt á mynd á netinu sem varð til þess að mig langar til sólarlandaaaa!! váh...

Ég hefði allavegana persónulega ekkert á móti því að rífa mig úr fötunum og lick the sun (eins og ein snjöll stúlka að nafni Lella vill kalla það ;) )

En annars er ég að fara á Borgóballið á morgun með krökkunum :D Það verður vonandi rífandi stemming þar... Svo er kanski málið að fara á ML ball á laugardaginn?? Ekkert alveg ákveðið en ég væri meira en til í að kíkja ;) Svo að nóg framundan og ég lofa ykkur myndum ;) Það verður nú að fara að hressa aðeins uppá þessa síðu! öss....

-Íris sólarlandalangari

- GoogooDolls- Iris (fannst þetta lag í upphafi sniðugt vegna þess að það hét Íris en fannst það síðan bara skemmtilegt)


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 15:00:59 / Frida

Uhh halló...

Þessi síða er með allra hressasta móti!

Íris er komin heim, notið tækifærið og knúsið hana í sundur!

Ball á morgun?

Nennekki meir...

Bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 23:45:23 / Iris

Próf og aftur próf!

Jæhja... ég er ekki frá því að við burgerflipperarnir sé ekki að standa okkur hérna í blogginu!

En ég er hinsvegar ekki beint í neinum skemmti hugleiðingum hérna á Akureyrinni! Ég er semsagt í annar prófum núna á meðan aðrir eru að hugsa um að eyða síðustu krónunum sínum á útsölum eða þess háttar! Ég er semsagt bara búin í 2 prófum (ensku og dönsku) og á 5 próf eftir! Búin að vera að læra eins og brjálæðingur núna um helgina fyrir stærðfræði og er ekkert alltof bjartsýn fyrir það próf! Eeeen vonum það besta! Það er náttla ekkert grín að hafa bara 16 dæmi á ANNAR prófi.. enda um 40-50% fall eða eitthvað bull! En eftir prófin verður vonandi tekið á því og gert eitthvað skemmtilegt, fæ einmitt viku frí eftir prófin og þá er planað að skella sér heim ;)

En litlu beyglurnar mínar eru semsagt búnar að plana ferð hingað til Akureyrar í febrúar! :D Verður geggjað að fá þær, vona að þær hitti á rétta helgi, annars leigja þær hvort sem er íbúð svo að þetta reddast ;) Aðalega gaman að fá að sjá þær !

Ákvað að setja inn mynd :D Rakst einmitt á skemmtilega mynd á netinu, af henni Dollý minni! Litla lambið mitt er bara orðið frægt ;) Ég og þessi fræga kind höfum gengið í gegnum ýmislegt saman, hún er einmitt með mér hérna á Akureyri... en varð flutningurinn henni að bana því að hún liggur hálf loftlaus uppá hillu... ég vil halda því fram að hún hafi verið myrt! Jafnvel nauðgað... öss... og hún sem var aðeins lítið saklaust lamb ;)

-Íris Bjéé :D

Btw setti inn nokkrar myndir frá hversdagslífinu af vistinni... hér til hliðar :D


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3